Sjá viðauka 7
desember 10, 2006
Viðauki sjö: Björn Hjaltason
Var það ekki einhvern veginn svona? alla vega myndi ég gjarnan vilja getað svarað þessu á munnlega prófinu í alþjóðlegum skattarétti sem ég er að fara í á morgun; ,,ha, ótakmörkuð skattskylda – já sjá viðauka 7″. Ég bara bið til Guðs að Kjartan og Brandur verði ekki með það fyrir augum að breyta okkur öllum í gull.
Fréttir: búin með eitt próf, eitt er svo á morgun og þá er ég hálfnuð. Og þið stærðfræðiheilar hafið líklega áttað ykkur á því að þá á ég tvö próf eftir – ok, flott hjá ykkur. Síðan verðum við litla fjölskyldan bara hér heima um jólin, sem er algjörlega nýtt upplivelse fyrir okkur.
Nenni ekki að bulla meira, Kjartan kallar…
kv. yðar einlægur Gáfnastrumpur vonnabí
Þetta er alla vega ekki verra en þau svör sem ég hef á takteinum
Þetta var ég 🙂
hehe, þú segir bara: sjá Hamragarða 405! múhahaha
HAHAHAHAHHAAHAHAHAH!!!!!!!!
Hahaha, þetta er brilliant !!!
…ég ætla líka að vísa í viðauka 7…. okí;)
en tær snilld!
Ég ætla að syngja (rammfalskt) ég á heima á skattlandi sem svar við öllum spurningunum.
Kveðja,
Falski strumpur
já, ég er farin að sjá fram á hópfall, kannski það fyrsta í sögu bifrastar – ekki slæmt það maður 🙂