Kristniboð

febrúar 26, 2007

vá, hvað opinbera réttarfarið kúventist í dag, við erum búin að hlusta á saksóknara og starfsmenn ríkisssaksóknara fjalla um opinbert réttarfar – síðan kom í dag einn sem starfar hinum megin við borðið, þ.e. er verjandi ribbaldalýðisins, og þá fékk maður beint í æð þessa mismunandi hagsmuni – annars vegar rannsóknarhagsmunir lögreglu og hins vegar hagsmunir sakbornings. Kennarinn boðaði hinn heilaga sannleika en ég hef ekki náð að frelsast – er alls ekki sammála honum um öll atriði þrátt fyrir að vera einn aðalmeðlimur leynifélagsins Óþokka og bófa. Halelúja!

9 svör til “Kristniboð”

  1. Jónína Ingibjörg said

    Það er samt hressandi að fá hina hliðina. Svo þarf maður bara að vega og meta… ekki satt?

  2. Mattý said

    já einmitt, en ég held við höfum mjög gott af því að fá hina hliðina. Alltaf gott að víkka sjóndeildarhringinn. Ég held það verði samt soldið skrítið að láta verjanda kenna okkur refsirétt … allavega ef það verður kennt út frá sjónarhorni verjanda.

  3. Birna Kristín said

    já, um að gera að fá hina hliðina á málum.

  4. annai said

    já, um að gera að fá hina hliðina, en mér finnst nú skv. Brynjari að þetta sé eina hliðin – ekki hin hliðin!

  5. Jónína Ingibjörg said

    Sko… það er ekki endilega víst að það sé heilagur sannleikur sem hann Brynjar segir…..

  6. sammála og sammála… Það er gott að fá hina hliðina en hvort þetta sé hinn heilagi sannleikur eður ei.. verður hver og einn að meta eins og Jónína segir! Annars held ég að maður tekur þessu með ákveðnum fyrirvara – þ.e. maður veit að hann er verjandi og talar út frá þeim póli! …

  7. Maja pæja said

    haha… jónína er skotin í Brynjari!!!

  8. Halldór said

    The dark forces are taking over the planet…

  9. annai said

    úúú, ég skelf af hræðslu, faðir vor – þú sem ert á himnum…

Færðu inn athugasemd

Skráðu umbeðnar upplýsingar að neðan eða smelltu á smámynd til að skrá þig inn:

WordPress.com Logo

You are commenting using your WordPress.com account. Log Out /  Breyta )

Twitter picture

You are commenting using your Twitter account. Log Out /  Breyta )

Facebook photo

You are commenting using your Facebook account. Log Out /  Breyta )

Tengist við %s

%d bloggurum líkar þetta: