já fínt já sæll já fínt já sæll já fínt já sæll…

október 18, 2007

ég er kolfallin fyrir Næturvaktinni, þetta eru snilldarþættir SNILLDAR! Tóti getur varla horft á þá því hann vorkennir svo svakalega Ólafi (starfsmanni á plani) en ég læt ekki svona væl hafa áhrif á mig. Ég er reyndar virkilega farin að spá í hvað sé eiginlega að mér, hef ég enga samúð með minni máttar? Fór t.d. að horfa á málflutning um daginn þar sem ég var sú eina af hópnum sem hélt með auðvaldinu, ekki greyið gamla manninum sem seldi óvart fasteignina sína á Hverfisgötu… Ég er vond vond vond og mér skilst meira að segja að mér sé ekki við bjargandi. Jæja þá er bara að lifa með því.

11 svör til “já fínt já sæll já fínt já sæll já fínt já sæll…”

  1. Jónína Ingibjörg said

    Já Anna mín. Þú þarft að fara að hugsa þinn gang. Annars gætir þú kannski lent innundir hjá auðvaldinu með fleiri fleiri milljónir á mánuði. Ekki viljum við það?!

  2. Hrafnhildur said

    Ég held að þetta sé rétt hjá þér Anna, eða ég hreinlega veit að þetta er rétt hjá þér.

    Ég googlaði „rauðhærð“ og „Hrafnhildur“ og hef hér sönnun þess að þú hefur enga samúð með minni máttar:
    http://a.hexia.net/faces/blog/entry.do?id=4881937750ba1d3a23c139cf20d59647&entry=6893

  3. annai said

    hehehe, þetta var þegar þú varst í afneitun Rauðka mín – ðe gudd óld tæms… og Jónína, við skulum sko vona að ég fari ekki á mála hjá Mammon, því þá verðum við óvinir, þ.e. þegar þú verður komin í FME (eða kannski ekki, við gætum kannski nýtt okkur tengslin, hittumst og fáum okkur dögurð og ræðum málin = ég kjafta frá leyndarmálum stóru karlanna og þú leyfir mér að vera í friði með mitt makk)

  4. Mattý said

    ekki að ástæðulausu að þú berð viðurnefnið óþokki … :-p

  5. Jónína Ingibjörg said

    Þetta er gott plan!

  6. annai said

    til að koma í veg fyrir allan misskilning þá vil ég taka það fram að Leiðarljós er ennþá nr. únó!!!

  7. Jónína Ingibjörg said

    Sjúkk maður!
    Var farin að hafa verulegar áhyggjur.
    En mig langar að sjá Næturvaktina 😦

  8. annai said

    þú getur það ekki jónína mín, til þess þarftu að fá þér digital stöð 2…

  9. Kollý said

    Ormurinn þinn! Hlæja að minni mátta – ég treysti því að Tóti standi vörð um börnin þín.
    Annars þarf maður ekkert stöð tvö digital neitt til að horfa á næturvaktina…we love http://www.youtube.com – þar má sjá allt – meira að segja myndir úr partýum á Bifröst.

  10. Þetta er snilldar þættir… og frasar eins og:

    „hvaða tegund af steik ertu eiginlega“
    „þú ert nú bara illa vinstri-grænn“
    „þurfum við að ræða þetta eitthvað?“
    „þú er greinilega ekki með kennitölu“
    „voru foreldrar þínir systkini?“

    osfrv.. ;)thihi

  11. annai said

    já, þeir eru snilldar…

Færðu inn athugasemd

Skráðu umbeðnar upplýsingar að neðan eða smelltu á smámynd til að skrá þig inn:

WordPress.com Logo

You are commenting using your WordPress.com account. Log Out /  Breyta )

Twitter picture

You are commenting using your Twitter account. Log Out /  Breyta )

Facebook photo

You are commenting using your Facebook account. Log Out /  Breyta )

Tengist við %s

%d bloggurum líkar þetta: