skírn?!?
október 31, 2007
já, það eru nú bara allir búnir að láta skíra nema ég – Fanneyjar prinsessa heitir Tinna og baunin hennar Maj-Brit(ar) heitir Herdís María. Óli frændi er svo að fara að skíra á morgun, ég held að nafnið sé ekkert leyndarmál en sonur hans á að heita Jakob Már.
Við erum búin að ákveða nafn á litlu rófuna okkar, en ÞAÐ er hins vegar LEYNDARMÁL – nanananabúbú nanananabúbú…
Ég þakka hlýhug í minn garð !
kveðja,
nafna – Kolbrún
Ég er mjög spennt yfir þessari nafnagjöf … veit reyndar að ég fæ ekki nöfnu 😉 en bíð alveg jafn spennt 😉 verst þykir mér að ég verði ekki stödd á landinu svo þú verður endilega að senda mér sms á skírnardaginn (eftir nafnagjöfina, auðvita)… heyri í þér áður en ég fer út með símanr. sem hægt verður að ná í mig með 🙂
Það var æði að hitta á ykkur sl. sunnudag! Mikið er hún falleg, prinsessan ykkar (jájá, ég veit að ég er væmin) og yndisleg og frábær í alla staði. Hemmi er líka sá allra flottasti og bræddi mig alveg upp úr skónum 🙂 Og auðvita var líka voða gott að hitta á ykkur foreldrana 😉 thihi – segi svona – það var rosa gott að spjalla aðeins við hana Önnu mína 🙂
knús og ég hlakka til að fá þig hingað í Kópavoginn!!!!
Bíddu síðan hvenær var það leyndarmál að stúlkan yrði skírð Jónína Sóley?
Ég hlakka til!
nanananabúbú nanananabúbú
-við erum heldur ekkert forvitin-
nanananabúbú nanananabúbú
já það er ?? hvað prinsessan á að heita, þú veist að mitt nafn er flott og sjaldgæft 😉 hehe Sá að ég átti miss call frá þér, kannski ég kíkji við í vikunni, fyrir vinnutörnina um helgina;) endilega hafðu samband þegar ég má kíkja 😉 kv. HM úr KSH
jæja….. Anna mín, þetta er allt í lagi. Með þessu áframhaldi þá getur stelpan þín bara ákveðið sér nafn sjálf þegar hún fermist, þ.e. ef hún vill fermast.
P.s. ertu búin að fá pakka frá Sóley og mér ?
HÆ hæ já þið verðið nú að fara að koma nafni á dömuna…. en hvað heitir aftur loðboltinn á heimilinu??? Ég var að reyna að komast inn á siðuna hjá ykkur á barnalandi og bara man ekki hvað hann heitir…
Kveðja frá Akureyrinni
loðboltinn heitir lubbi 😉 og nei enginn pakki kominn guðný – ég skil ekkert í þessu!!!