ahhh
janúar 8, 2008
loksins komin með netið,
ýmislegt hefur gengið á hjá litlu fjölskyldunni, erum flutt í til Gunnars og trjánna í Kaupavog, ég er búin að skila ritgerðinni, byrjuð í nýrri vinnu og Hermann búinn að fara á fyrstu æfinguna með Breiðabliki, Tóti dundar með börnin heima og Elma stækkar og stækkar og er brosmildasta barn sem ég hef séð – já, allt er dásamlegt og allir molarnir eru góðir: takk pabbi fyrir konfektkassann, ég át hann ALLAN!
Hæ tvíbbi
Það er sko frábært að fá ykkur í Kaupavoginn… og rosalega fín íbúðin ykkar. Alltaf jafn notanlegt að koma til ykkar 🙂 Hlakka til að sjá meira af ykkur og það er rétt – hún Elma stækkar og stækkar og er allra brosmildust 🙂 og Hemmi vinur minn – hann er flottasti fótboltastrákurinn! K&K Halla Björg
ps.bara mánuður í útskrift … í dag!!!
váá.. þetta hljómar ekkert smá vel! Innilega til hamingju með þetta. Fékkstu vinnu á Goldfinger?
takk takk, nei ég fékk einkaumboð fyrir hooters 😉
hæ hó bíð spennt eftir að fá að heyra hvert þið eruð flutt, eða er ekki óskað eftir að maður kíkji við? kv.HM
Hæ hæ til hamingju með þetta allt.
Bestu kveðjur frá Spáni.
Til hamingju með heimilið, til hamingju með jólin og áramótin, til hamingju með brosmildu stelpuna þína og heimavinnandi manninn þinn – til hamingju með hooters á biskupsstofu.
Ég bið að heilsa Þorvaldi Karli.
takk takk takk takk takk, ég skila kveðjunni (gat skeð að þú ættir einhverja bandamenn innanbúðar hjá almættinu)
Sælar frú Anna
Verð greinilega að fara að kíkja í Hlynsalina til að leita mér guðsblessunar. Til hamingju með ritgerðina og flutninginn.
Til hamingju með nýja heimilið (Anna og Tóti) og nýju vinnuna. Maður fer kannski að láta sjá sig í heimsókn til ykkar svona ef biðtíminn heldur áfram.
Gleðilegt nýtt ár… sjáumst vonandi meira á því nýja
Kveðja
Hilda