ammili
mars 28, 2007
Áslaug Björk Björnsdóttir, semifrænka mín með meiru, á afmæli í dag – 29f ára. Til lukku með daginn gamla mín, vonandi verður þú ánægð með róluna sem við stelpurnar ákváðum að gefa þér (vona að það komi ekki að sök að hún sé ekki með Tiger munstri en hestabúðin í Boringnesi bauð bara upp á blesótt eða jarpt…) – swing it on babe!!!
Mjög forvitnilegt þetta með róluna en mér leikur samt meiri forvitni á að vita hvað 29f þýðir? (fokkings, fjárans, falleg, fúl, feit, fyndin, frábær??)
ég tók því alltaf sem fokkings – þess vegna hafi rólan verið fyrir valinu … ehemm þeas svo að gamla fólkið gæti rólað sér í svefn á kvöldin…
f-ið þýðir ekkert dónalegt sko, en 29bdsm er dónalegt…
Til hamingju kæra Ása. Vona að þú lesir þetta. Hefði sko mætt í Mohito í kvöld ef ég hefði verið komin í páskafrí 😦
ég mætti í mohito
ég var að vakna
það var þess virði
ég er búin að læra finnska þjóðsönginn og finnska þjóðdansinn jolli,jolli,jocka…
Ég ætla að herma eftir Jónínu og óska Ásu til hamingju með afmæilð (í gær) ég hefði mætt ef ég hefði ekki verið farin að hanga hálf sofnum fram á matarborðið, vitandi það að ég þyrfti að vakna morguninn eftir.
Frétti samt að þið hefðuð skemmt ykkur vel 🙂
vá hvað þetta var illa orðað og mikið af innsláttar og öðrum villum …
finnski þjóðdansinn var óborganlegur, versta var að hann var líka þannig að það var ekki hægt að leggja hann á minnið þrátt fyrir margar margar sýningar…
mattý – þú lifir þetta af er það ekki?
Hummm – já takk fyrir það – þurfum að endurtaka mohito-kvöld mjög fljótlega og þá er eflaust hægt að flétta finnska og jafnvel sænska þjóðdansinn inn í þetta! En spurning dagsins er HVER STAL RÓLUNNI? því þrátt fyrir mikla eftirgrennslan þá finnst hún ekki á heimilinu???
Takk fyrir mig þið eruð náttúrulega bara frábærar… 🙂
Ása F-ing 29!